top of page
gk transparent back.jpg

Einstaklingsvefur.Gunnar Karl

Sýningarvefur

Gunnar Karls Jóhannessonar

frá útskirftarsýningu grafsískar miðlunar í Tækniskólanum, haustið 2023.

Um mig
um mig

Um mig

Gunnar Karl heiti ég og fæddist í Reykjavík árið 1996. Ég flutti til Þýskalands á aldamótunum og tengi æsku mína þangað. Ég flutti þó aftur til Íslands fimm árum seinna og hef að mestu leiti búið þar síðan. Ég hef verið mikið á flakki eftir að ég kláraði grunnskólann, bjó um skeið í Bretlandi, Írlandi og Kína og unnið við mikinn fjölda af allskonar störfum og flakkað á milli atvinnulífs og skóla. Mér hefur alltaf þótt gaman að búa til hluti, teikna eða smíða, það færði mig í nám í Tækniskólanum í Reykjavík og varð grafísk miðlun fyrir valinu. Það hjálpaði mér gríðarlega að ég var þegar búinn að taka stutt netnámskeið í Adobe Illustrator, svo ég kunni á mikið af tólunum og var búinn að nota þau mikið áður. Það hjálpaði mér líka með að vita nákvæmlega í hverju námið fólst eða hvernig vinnulagið, ég gat þá nokkurn veginn stólað á að námið væri skemmtilegt. Það er ekkert leyndarmál að mér hefur aldrei gengið vel í skóla þannig að þetta var mjög mikilvægt að negla áður en ég fór í námið.

Samhliða öllu öðru hef ég einbeitt mér mikið af iðkun í rallý keppnum, bæði hér- og erlendis. Grafíska miðlunin er búin að hjálpa mér gríðarlega mikið í sportinu. Ég hef náð að skera mig vel út úr hópi rallýökumanna á Íslandi með því að kunna að hanna útlit, gert kennimerki og vinna með liti og prentgripi. Ég hef heilfilmað marga keppnisbíla, skeytt saman myndum í plaköt og auglýsingar og gert vefsíðu utan um rallý ferilinn minn auk fleiru.

 Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég ætla að vinna við eftir námið en það sem er fremst í mínum huga er að komast í fleiri rallkeppnir erlendis, læra meira á aksturstækni og getað síðan starfað tengt þessu sporti í framtíðinni. Auðvitað stefnir maður alltaf á að verða atvinnuökumaður, en hvað er að því að hafa eitthvað annað til vara?

fyrri önn

Verkefni fyrri annar

Ég fékk það verkefni að búa til nýtt tryggingarfélag. Búa þurfti til logo, ákveða liti fyrirtækisins, markaðs-áætlun, stefnu fyrirtækisins og ákveða hvað þetta félag getur boðið sem er einstakt og gott er að hafa í kynningarefni.

hfm.png

Ég bjó til nýja verslun sem lokaverkefni mitt á fyrri önn. Stílsport er sportvöruverslun, hún sérhæfir sig í sam-vinnu með  íþrótta miðstöðvum og félögum. Verslunin býður upp á sérmerkingar og klæðskornar flíkur.

bjork.png

Á fyrri önn braut ég um texta í bók sem heitir Hús feðra minna, frásögn sem gerir andlitið fagurt. Ég sá um hönnun á kápunni og innsíðum, vann myndir vann textan svo  gott væri að lesa hann.

stílsport.png
seinn önn

Verkefni seinni annar

Frammáli.png

Embla er tímarit sem ég bjó til sem lokaverefni á seinni önn, meðal auglýsinga skrifaði ég líka fréttagrein um rally tímabilið 2023. Smelltu hér á hlekkinn til að lesa blaðið.

Í þessu verkefni bjó ég til jafnréttissamtök sem hjálpa nýjum innflytjendum að aðlagast íslensku umhverfi. Ég bjó til kennimerki fyrir stofnunina og auglýsti ráðstefnu sem hún hélt í Hörpu til að vekja athygli á málefninu.

bjork.png
Wonderbird.png

Þetta er eitt af nokkrum auka verkefnum sem ég vann við á meðan ég stundaði nám hérna í skólanum. Ég vann við mikið af aukaverkefnum en ákvað að velja þetta til að bæta við kynninga síðuna hjá mér.

bottom of page